Miðvikudagur, 25. febrúar 2009
Meira um nýsköpun
Ég leyfi mér að birta hér kafla af síðunni norden.org þarna kemur fram að Norðurlöndin eru að dragast mikið aftur úr í nýsköpun. Ég hef mikinn áhuga á að beita mér í þessu máli og ég vil sjá Ísland verða tilfyrirmyndar hvað þetta varðar. Betur má ef duga skal, hér að neðan er kaflinn.
"Oft er rætt um Norðurlöndin sem í fararbroddi á sviði nýsköpunar. Í nýrri rannsókn kemur þó fram að Norðurlöndin standi lakar að vígi á ákveðnum sviðum en þau lönd sem besta standa, til dæmis Bandaríkin og England. Í skýrslunni er lagt til að lögð verði áhersla á nýsköpunarhæfni á Norðurlöndum, meðal annars er fyrirtækjamenning verði efld. Ágallar í fyrirtækjamenningu hafa leitt til þess að Norðurlöndin hafa orðið eftir hvað varðar fjölda fyrirtækja í miklum vexti.
Þetta kemur í ljós í norræna nýsköpunarkvarðanum sem Norræna ráðherraefndin hefur látið vinna. Í skýrslunni er nýsköpunarhæfni á Norðurlöndum metin miðað við önnur lönd í OECD. Í kvarðanum eru alls 165 mælikvarðar á sviði upplýsinga- og samskiptatækni, mannauðs, þekkingarþróun og nýsköpunar. Markmiðið er að kvarðinn geti verið undirstaða þróunar á nýsköpunarstefnu á Norðurlöndum.

Í skýrslunni kemur fram að Norðurlöndin eru í fremstu röð á sviði upplýsinga- og samskiptatækni, til dæmis hvað varðar aðlögun tækni í daglegu lífi íbúa og fyritækja. Norðurlöndin leggja að auki mikla áherslu á menntun, rannsóknir og þróun en það er mikilvægt að fyrirtækin nýti sér sköpunargáfu og nýsköpunarhæfni starfsfólksins. Í skýrslunni er meðal annars bent á þörfina fyrir góðan aðgang að yfirstjórn og dreifingu ábyrgðar.


Einnig er í skýrslunni lögð áhersla á mikilvægi þess að reka virka efnahagsstefnu á erfiðum tímum.Þróttmikil efnahagsstefna gefur tækifæri á lausnum við úrlausnarefnum áheimsvísu, svo sem loftlagsbreytingum og aðgangi að hreinu vatni. Áhersla á nýsköpun er mikilvægur hlutur virkrar efnahagsstefnu, segir í skýrslunni.

Þetta er í fyrsta sinn sem norræni nýsköpunarkvarðinn er unninn.Skýrslan verður kynnt í tengslum við norrænu hnattvæðingarráðstefnuna á Íslandi dagana 26.-27. febrúar. Þátttakendur á ráðstefnunni sem nú er haldin í annað sinn, verða fimm norrænir forsætisráðherrar, aðrir ráðherrar og rúmlega eitthundrað stjórnmálamenn, embættismenn og fulltrúar atvinnulífsins, og munu þeir ræða úrlausnarefni og möguleika hnattvæðingarinnar."
Hér eru 2 útgáfur af skýrslunni, ýttu hér fyrir styttri útgáfu, en hér fyrir lengri.
ÁrniHaraldsson
2 - 4sæti í forvali VG í Reykjavík
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.