Þriðjudagur, 24. febrúar 2009
Nýsköpun
Ég ætla að fara aðeins yfir þetta fyrirbæri sem er kallað nýsköpun. Hvað er nýsköpun spyrja sig einhverjir. Nýsköpun er hugtak um að skapa eitthvað nýtt. Byrja með báðar hendur tómar, fá hugmynd og skapa. Úr verður eitthvað mikilsvert sem stundum kemur á óvart en að sama skapi getur líka illa tekist til. Það sem gerir þetta hugtak áhugavert er tengingin við listina, sköpunina.
Nýsköpun á ekki bara heima í listinni, heldur alls staðar og í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur. Nýsköpun á ekki síður heima í pólitík og stjórnsýslu, fyrirtækjum í fullum rekstri og síðast en ekki síst á nýsköpum heima hjá sprotum.
Við getum gert not úr nýsköpun á marga vegu í stjórnmálum. Mér hefur ekki þótt mikið af nýsköpun á hinu háa Alþingi síðustu vikur og mánuði. T.d. í gær máttum við horfa upp á vansköpun á Alþingi við umræður um Seðlabankafrumvarp. Með nýsköpun, getum við t.d. fengið nýtt fólk þar inn, til að skapa eitthvað nýtt sem hefur aldrei sést áður. Það gerum við með því að velja þar til verka nýtt fólk eins og undirritaðann og fleira gott fólk sem býður sig fram í prófkjörum fyrir marga flokka úti um land allt.
Nýsköpun þarf einnig að koma til í stjórnsýslunni. Við þurfum að fá stjórnsýslu sem vinnur náið með stjórnvöldum og Alþingi. Við þurfum nýtt blóð í nýju ríkisbankana og kraftmikið og duglegt fólk í verkstjórnir hinna ýmsu stofnana. Við þurfum fólk með listræna hæfileika í bland við raunsæi og stjórnun.
Það er mikið talað um gegnsæi í stjórnmálum og íslenskri stjórnsýslu. Það er krafa fólks að mál verði héðan í frá rædd opinskátt og aðgengið að upplýsingum verði bætt. Hér er um ákveðina tegund nýsköpunnar að ræða.
Ég vil sjá nýsköpun blómstra á Íslandi í hvaða grein sem er. Sér í lagi hef ég áhuga á að sjá góðan og mikinn stuðning við hæfileikarík samtök eins og Hugmyndaraduneytid.is
Þar er á ferð geysikraft mikið fólk, listamenn, hver á sínu sviði. Þessi samtök hittast á hverjum laugardegi og eru alltaf með nýtt megin efni sem er tekið fyrir á hverjum fundi. Ég leyfi mér að birta hér kafla frá heimasíðu þeirra :
"Hugmyndaráðuneytið er samfélagsverkefni sem byggir á sjálfboðavinnu og tók til starfa í byrjun þessa árs. Hugmyndaráðuneytið stendur fyrir reglulegum hópfundum þar sem frumkvöðlar, hugsuðir og fagmenn frá ólíkum sviðum atvinnulífins, háskólunum og stjórnsýslunni hittast og skiptast á hugmyndum, reynslusögum, hlusta á fyrirlestra, mynda tengsl og veita hvert öðru stuðning til framkvæmda. Áhersla er lögð á jákvæðni og tækifæri. Hugmyndaráðuneytið leggur einnig sín lóð á vogaskálarnar í málefnum þar sem það telur sig geta látið gott af sér leiða."
Ég tel að með auknum stuðningi við slík samtök stígum við ákveðið og þarft skref áfram. Stórt skref í endurreisninni til að endurheimta það traust og þá virðingu sem Ísland verðskuldar í hinum stóra heimi. Svo þá má spyrja, hvernig styðjum við slík samtök án pólistískra afskipta ?
Ein leið sem ég hef í huga er sú að koma á nánu samstarfi við sjóði eins og hinn nýja sjóð Björk, sem er einkarekinn frumkvöðla- og sprotasjóður, eða Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins. Sjóðir sem þessir þurfa að hafa yfir fjármagni að ráða til að koma góðum nýsköpunarhugmyndum af stað. Það er hinsvegar efni í annan pistil að útfæra skipulag Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins sem er opinber stofnun.
Ég þykist þess full viss að þú lesandi góður búir einnig yfir góðum hugmyndum um útfærslu þessa máls og ég myndi gjarnan vilja heyra þína skoðun svo endilega sendu mér þínar hugmyndir og ræðum þær.
nýsköpunarkveðja,
ÁrniHaraldsson
2- 4 sæti í forvali VG í Reykjavík
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.